Árangursmyndir viðskiptavina

Persónulegt næringarapp

Í appinu geturu fylgst með matarplaninu þínu

App screenshot

Um mig

Ég heiti Óskar Örn Einarsson og er 26 ára gamall. Ég er að útskrifast með BSc gráðu í íþróttafræði og hef í mörg ár sankað að mér þekkingu á öllu sem tengist hreyfingu, næringu og því að bæta líkamlega getu.

Áður en ég fór að stunda líkamsrækt var ég virkur í íþróttum sem barn, þannig að hreyfing hefur alltaf verið hluti af mínu lífi. Ég hef stundað líkamsrækt í um 10 ár, með smá pásum inn á milli, en ég hef í raun aldrei hætt að hreyfa mig. Ræktin hefur alltaf verið minn grunnur þar sem ég hef byggt upp styrk og aga, og á tímabili prófaði ég mig áfram í crossfit. Undanfarið hef ég svo bætt hlaupum inn sem nýju áhugamáli sem hefur verið skemmtileg áskorun og góð viðbót við þjálfunina. Á sumrin nýt ég þess einnig að spila golf.

Það sem ég hef lært á þessari vegferð er að raunverulegur árangur kemur ekki frá skyndilausnum heldur frá aga, góðum venjum og stöðugri vinnu yfir tíma. Fyrir mér snýst þetta um að byggja upp lífsstíl sem er bæði árangursríkur og sjálfbær til lengri tíma.

Ég hef mikinn áhuga á íþróttum, almennri heilsu og góðu líferni og legg áherslu á að mæta hverjum og einum þar sem hann er staddur, hvort sem það eru fyrstu skrefin í ræktinni eða markviss uppbygging hjá afreksíþróttafólki.